top of page
Velkomin í Krakkasmiðjuna!

Ævintýrasmiðjan er skapandi spuna- og sögunámskeið fyrir íslensk börn í Berlín, á aldrinum 6–10 ára. 

Námskeiðið fer fram á laugardögum.
Dagsetningar verða birtar hér með góðum fyrirvara áður en námskeið hefst. 

Tími 1: laugardaginn - 

Tími 2: laugardaginn - 

Tími 3: laugardaginn - 

Tími 4: laugardaginn - 

Hvar: House of Music 
Revaler Str. 99/Halle 20, 10245 Berlin, Germany

Tíminn hefst: Kl. 11 og lýkur kl. 12  
Gott að vera mætt kl. 10:50 

​​

Námskeiðið hvetur börn til að kanna sköpunarkraft sinn í skemmtilegu og styðjandi umhverfi, þar sem ímyndunaraflið fær að ráða ferðinni og sjálfstraust eflist.

Taktu þátt í ógleymanlegri upplifun!

att_edited.jpg
Heimasíða.png
ÆVINTÝRASMIÐJAN
Ævintýrasmiðjan er fyrir börn á aldrinum 6–10 ára.
Á fyrsta námskeiðinu okkar er engin aldurskipting.
Allir fá að taka þátt á sínum forsendum.

Á námskeiðinu fá krakkarnir m.a. að:

  • leika sér og fá útrás í gegnum hreyfingu

  • efla sköpunargleðina í gegnum teikningar

  • skapa eigin sögupersónur og ævintýraheim

  • leika senur og prófa hugmyndir sínar í verki
     

Í lok námskeiðsins hefur hvert barn fengið tækifæri til að skapa sameiginlega sögu þar sem sögupersónurnar og teikningar fá pláss í einni bók. Forráðamenn fá bókina afhenta á rafrænan hátt.

 

Ævintýrasmiðjan er frábært námskeið fyrir börn sem hafa gaman af hreyfingu, myndsköpun og gefa ímyndunarafli lausan tauminn. Rúsínan í pylsuendanum er að námskeiðið getur aukið áhuga barna á bókalestri.

att_edited.jpg

Um kennarann

DSC08679.jpg

Gunnbjörn Gunnarsson útskrifaðist frá Cours Florent Berlin með B.A. gráðu í leiklist.

Hann hefur aðallega unnið að kvikmynda- og leikhúsframleiðslu í Berlín sem og að íslenskum verkefnum á Íslandi. Samhliða leiklistinni er Gunnbjörn einnig handritshöfundur og framleiðandi.

Ertu með fyrirspurn eða viltu vera á póstlista hjá Krakkasmiðjunni og fá upplýsingar á email um leið og þær birtast, skráðu þig hér!

Takk fyrir, skilaboð móttekin!

bottom of page